Hundafimi er fjörug og skemmtileg íþrótt sem gengur út á það að láta hund þræða þrautabraut og þarf hann að gera það eins fljótt og eins rétt eins og hann getur. Hundafimi á umfram allt að vera góð leið til að skemmta sér og leika við hundinn sinn.
Saga hundafiminnar
Hundafimi kemur fyrst fram á sjónarsviðið á Crufts hundasýningunni árið 1978, og var hún gerð að fyrirmynd hindrunarstökksbrauta fyrir hesta. Á sýningunni sló íþróttin rækilega í gegn þar sem hundeigendurnir sáu hundana þjóta í gegnum göng og yfir tæki á fleygiferð og liðu ekki nema 2 ár þangað til keppt var í fyrstu stóru hundafimikeppninni í Bretlandi. Árið 1980 var Breski kennel klúbburinn búinn að gera reglur og farinn að halda keppnir.
Upp frá því fór hundafimin á flug og er í dag orðin stærsta og fjölmennasta hundaíþrótt í heiminum og sífellt fleiri falla fyrir þessari skemmtilegu íþrótt um allan heim.
Hvernig fer keppni fram
Í keppni er einn hundur og eigandi/stjórnandi í braut í einu. Hundurinn má ekki hafa neitt á sér, ekki einu sinni ól, og stjórnandinn má ekki hafa neitt í höndunum né má hann snerta hundinn eða tækinn þegar hann hleypur brautina. Hann verður því að reiða sig að öllu leiti á sinn eigin líkama og rödd til að stýra. Dómarinn ákvarðar það hvernig brautin lítur út, hvar tækin eiga að vera og í hvaða röð þau skulu tekin. Ýmis tæki eru í hundafimi, s.s. snertitæki, hindranir, göng, vef og fleira. Áður en keppni hefst fá keppendurnir tækifæri til að ganga brautina til þess að læra hana og ákvarða hvernig þeir ætla að hlaupa hana. Að ganga brautina skiptir öllu máli því stefna hennar getur skipt margoft um stefnu og getur sama tækið jafnvel verið tekið tvisvar eða oftar. Þegar allir keppendur hafa hlaupið er þeim raðað eftir tíma, villufjölda og neitana. Það par sem stendur uppi með besta tímann þegar búið er að bæta við villum og neitunum sigrar.
Hvaða hundar geta farið í hundafimi
Hundafimi hentar öllum hundum, óháð tegund, aldri og stærð og er ekki óalgengt að sjá Chihuahua, Papillon, Border Collie og Stóra Dana æfa saman. Hundafimi gengur út á það að hlaupa með hundinn lausann og því skiptir miklu máli að eigandinn/stjórnandinn hafi góða stjórn á hundinum sínum og óhæft er að vera með hunda sem ráðast á aðra hunda eða fólk á æfingum. Aldur er oft sagður vera afstæður í hundafimi þar sem að stjórnendurnir sjálfir eru á öllum aldri og er í raun sjaldan of seint eða of snemmt að byrja. Þar sem að íþróttin reynir töluvert á líkama hundsins skiptir máli að hann sé í góðu líkamlegu formi og ekki of feitur en ekki er óalgengt að hundar sem stunda hundafimi alla sína æfi geri það langt fram á táningsárin, enda stuðlar áreynslan af æfingum að því að þeir haldast í góðu formi eftir öllum aldri.
Hvernig kemst ég í hundafimi
Allir hundar sem lokið hafa grunnnámskeiði, hlýðni brons eða svipuðum námskeiðum og gráðum geta komið á námskeið í fiminni. Ástæða þess að þessi krafa er gerð er til þess að þjálfararnir geti verið vissir um að búið sé að kenna hundinum grunnæfingar í hlýðni s.s. innkall, sitja og liggja. Námskeiðin eru haldin með reglulegu millibili og eru samtals 8 skipti. Á námskeiðinu er farið yfir öll tækin sem eru í fimini og hundinum kennt að fara í gegnum þau á réttan hátt. Flest tæki tekur aðeins stuttan tíma að kenna og hundar eru fljótir að átta sig á því hvað það er gaman að fara yfir brú eða í gegnum göng og leika svo við eiganda sinn. Öll þjálfun í hundafimi byggist upp á jákvæðum nótum og er stranglega bannað að skamma hundinn sinn í hundafimi fyrir að gera tækin rangt því undantekningarlaust er það okkur að kenna og þá er mun betra að reyna bara aftur. Í hundafimi skiptir öllu máli að hundur og eigandi séu þarna saman á sömu forsendu, til þess að leika sér og njóta samvistar hvor við annan með því að gera eitthvað skemmtilegt, krefjandi og fjörugt saman.