Léttan taum sem hundurinn getur auðveldlega dregið á eftir sér – Keðjutaumar og Flexitaumar eru ekki leyfanlegir.
Stuttan taum (15-20 cm á lengd) sem getur hangið í ólinni án þess að hundurinn stígi á hann
Venjulega hálsól, leður eða nælon. Keðjur eru ekki ráðlegar þar sem að það getur meitt hundinn ef hann lendir í því að flækja tauminn í tækjunum.
Dót – bolta, reipi eða hvað annað sem hundurinn hefur gaman af.
Nammi – pylsur,lifrarpyls, harðfisk eða hvað annað sem hundinum finnst gott
Vatnsdall – hundurinn verður oft þyrstur á æfingum, sérstaklega þegar hann fær að hlaupa mikið
Skítapoka
Svangan hund - ef hundurinn er ekki búinn að fá að borða áður en hann fer á æfingu hefur hann meiri ástæðu til að leggja sig betur fram fyrir nammið og er því duglegri á æfingunni.