Brúin er löng og mjó og í þónokkurri hæð. Margir hundar finna til lofthræðslu þegar þeir eru að fara yfir hana í fyrstu skiptin, en skemmta sér vel á henni þegar þeir hafa vanist henni. Á henni læra hundarnir að halda jafnvægi.
Reglur Hundurinn verður að fara réttum megin upp á brúna, eins og lagt er fyrir í braut, og a.m.k. einn fótur þarf að snerta lituðu fletina neðst við báða enda á brúnni, svokallaða snertifleti. Þessir fletir eru til öryggis og jafnframt stjórnunar