Dekkið tilheyrir í raun hoppunum þar sem hundurinn hoppar í gegnum dekkið, en oft á hundurinn erfitt með að læra það. Dekkið er fest á þremur til fjórum stöðum í ramma svo það hangir í raun í lausu lofti (sjá mynd), hundurinn á að miða á gatið og hoppa í gegn.
Reglur Hundurinn verður að fara réttum megin í gegnum dekkið og má ekki fara neins staðar til hliðar við það. Undir, yfir og til hliðar eru allt villur. Hundurinn má ekki halda áfram í brautinni fyrr en hann hefur lokið við dekkið.