Göngin eru oft eitt af uppáhaldstækjum hundsins, en gæta þarf vel að því að hann merki sér þau ekki að innan. Göngin geta í brautinni verið hvort sem er bein eða í sveigju (sjá myndir), eins geta þau staðið sér í brautinni, einnig er vinsælt að leggja gildrur fyrir hundinn með því að leggja göngin undir önnur tæki , t.d. brú eða A-ið. Hundurinn lærir hér að fara í gegnum eitthvað sem hann sér ekki fyrir endann á, treystir að eigandi hans segi honum rétt til. Minni hundar hlaupa í gegn án vandkvæða en stærri þurfa oft að skríða.
Reglur
· Hættir við eftir að hafa stungið nefi inn Neitun