Næsta laugardag 21 júni 2014 verður haldið bronsmerkjapróf í hundafimi á hundasýningu HRFI í Víðidalnum. Bronsmerkjakeppninn byrjar um kl 15.
Hægt er að skrá sig á staðnum og greiða fyrir það. Hvert bronsmerkjapróf kostar 1000 kr Hægt er að lesa sig til um bronsmerkjaprófið á hundafimi.is Í bronsmerkjaprófi þá þarf hundur að vera ólarlaus og stjórnandi ekki með neitt nammi eða annað í vösunum á meðan keppni stendur. Skrá þarf hundinn fyrir keppina og greiða áður en keppni hefst. (koma með pening er ekki með posa) Ef hundur stenst bronsmerkjaprófið þá hefur hann unnið sér rétt að mæta í opnu timana og æfa hundafimi eins og aðrir sem að hafa farið í bronsmerkjaprófið eða farið á námskeiðið. Einnig verður hægt að koma og prófa tækin undir kennslu þjálfara eða reynda keppenda á undan keppni eða eftir keppnina. Til að koma og prófa tækin er best að vera með venjulegan taum, ekki flesitaum eða keðjur. Gott er að hafa gott hundanammi við höndina, lyfrarpylsa er alltaf vinsæl. Hlakka til að sjá ykkur öll
0 Comments
Leave a Reply. |
Íþróttadeild HRFÍÍþróttadeildin heldur úti námskeiðum og æfingum og keppnum í hundafimi.
Archives
October 2023
|