Deildin óskar Monika Dagný Karlsdóttir hjartanlega til hamingju
með að vera komin með dómararéttindi til að dæma hundafimina hja Íþróttadeild HRFI. Hlakka til samstarfs við hana og Ragnar Sigurjónsson hundafimi dómara á næstu árum..
2 Comments
Stjórn Íþróttadeildar hefur ákveðið þá nýbreytni að halda reglulega bronsmerkjapróf Íþróttadeildar í hundafimi.
* Bronsmerkjaprófið samanstendur af lágmark 15 tækjum í kontakt braut. * Standast verður brautina bæði tímalega og villulega. * Reglur um bronsmerkjaprófið má finna undir reglum. * Allir hundaeigendur eru velkomnir í bronsmerkjapróf hvort sem þeir eru innan HRFÍ eða utan. * Hundur verður að vera orðin 1 árs gamall og vera heilsuhraustur til að taka bronsmerkjaprófið. * Boðið er upp á þetta sem inntökupróf í opnu tímana í stað þess að fara á námskeið. * Einnig verður áfram boðið upp á námskeið í hundafimi eins og áður hefur verið. * Til að koma í opnu tímana verður hundur að vera alltaf undir stjórn þó hann sé laus innan um aðra hunda. * Kostnaður við bronsmerkjapróf er 3500 kr * Skráning í bronsmerkjapróf Íþróttadeildar er í [email protected] Koma verður fram í skráningu -Nafn, -Kennitala, -Nafn hunds -Tegund Skráning og greiðsla verður að berast viku fyrir áætlaðan próftíma. Fyrsta bronsmerkjapróf í hundafimi verður fimmtudaginn 24 apríl, kl 16 í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum. Aðalfundur deildarinnar var haldinn 8.mars og búið er að halda fyrsta stjórnarfund. Sitjandi stjórn í dag er sama og í fyrra. Anna Björnsdóttir (formaður), Rúnar Tryggvason (ritari), Monika Karlsdóttir (gjaldkeri), Anna Hermannsdóttir (meðstjórnandi) og Silja Unnarsdóttir (meðstjórnandi). Einnig var skipað í nefndir og bjóðum við þeim nefndarmönnum velkomna til starfa um leið og við þökkum aðstoð þeirra til starfa fyrir deildina. Nánari verður tilkynnt um nefndarmenn á krækju um stjórn og nefndir á heimsíðunni fljótlega.
Gaman er að segja frá því að mikið stendur til á komandi ári bæði hvað varðar hundafimi og aðrar íþróttir með hundum. Ef við fáum góðar undirtektir er hugmyndin að bæta við hluti eins og lyktarboðhlaup (scent hurdles) og aðrar í kjölfarið eins og rekstrarbolti (Treibball) og rallý hlýðni. Með það í huga vantar fleiri áhugasama aðila í nefndir innan deildarinnar þar sem stjórn getur ekki sinnt þessu öllu sjálf. Þessar íþróttir verða á byrjendastigi og mikið til prufu starfsemi s.s. ekki keppt í þeim opinberlega næstu árin heldur aðallega æfingar og opnum keppnum þegar næg þátttaka hefur myndast. Hafðu samband ef þú hefur brennandi áhuga, getu og vilja til að hjálpa okkur koma nokkrum íþróttum á legg hér heima. Hundafimi er stundað á fullu innan deildarinnar og vantar alltaf fólk til aðstoðar við keppnir, endilega látið vita ef þú getur rétt okkur hjálparhönd. Opnir tímar deildarinnar: Hundur og eigandi þurfa að hafa góða þekkingu á hundafimi til að taka þátt í opnu tímunum til að trufla ekki aðra, koma í veg fyrir slys og til að ná sem bestum árangri í tímunum. Mikilvægt er að þeir sem mæta séu búnir að fara á námskeið í hundafimi og kunna á öll tækin. Opnir tímar eru ekki kennslustundir þó er alltaf einn leiðbeinandi eða aðstoðarmaður á staðnum og er velkomið að biðja um aðstoð eða ráðleggingar. Þeir hundar sem lokið hafa hundafimi námskeiði hjá Hundaskóla Hrfí eru velkomnir í tímana sem haldnir eru á sunnudagskvöldum milli 20-21. Hægt er að borga á staðnum eða kaupa tímakort hjá Hundaræktarfélagi Íslands (Síðumúla 15). Nýtt fyrirkomulag hefur einnig tekið gildi til að hleypa fleiri að í opnu tímum deildarinnar. Viljum við í stjórn hvetja alla þá sem áhuga hafa á hundafimi að mæta í keppni hjá deildinni. Við höfum ákveðið að opna fyrir þann möguleika að ef þú telur hundinn hafa þekkingu en hafið lært annarsstaðar en hjá Hrfí er velkomið að sýna fram á kunnáttuna með því að mæta í keppni á vegum Íþróttadeildar. Tekið verður mið út frá getu þar. Keppnir eru opnar öllum þó þarftu að hafa keppnisbók gefna út af Hrfí (nema annað sé tekið fram) svo hægt sé að skrá árangur og fást þær hjá deildinni. Nýja fyrirkomulagið gengur út á að hundur nái gildri braut innan hámarkstíma (HTB) sem er 2x viðmiðunartíma (VTB). Gerist það er greinilegt að þekkingin er til staðar og þú getur fengið að mæta í opnu tíma deildarinnar í kjölfar til að fínpússa og æfa. Nokkrar keppnir eru haldnir á hverju ári og vonumst við til að geta bætt við opnum keppnum á árinu en það veltur að sjálfsögðu á þátttöku. Einnig höfum við ákveðið að taka upp stöðupróf sem er byggð á fyrirmynd frá norska hundaræktarfélaginu en það er svokallað bronsmerkjapróf í hundafimi. Þú þarft ekki keppnisbók til að geta tekið þátt í bronsmerkjaprófi Íþróttadeildar. Prófin eru opin öllum. Nánar verður fjallað um bronsmerkjaprófið á heimasíðunni og verður fyrsta prófið auglýst fljótlega. Hugsanlega er hægt að halda slík á eins til tveggja mánaða fresti, þannig að endilega skrá þig ef þú vilt komast í stöðupróf. Bronsmerkjaprófið er líka ætlað þeim sem vilja prófa að keppa áður en þeir skrá sig í gilda keppni þar sem þetta verður í raun einskonar byrjendaflokkur. Standist hundur bronsmerkjapróf í hundafimi er honum heimilt að mæta í opna tíma. Vonumst við til að sjá sem flesta keppa á þessu ári. Næsta keppni deildarinnar verður 31. maí |
Íþróttadeild HRFÍÍþróttadeildin heldur úti námskeiðum og æfingum og keppnum í hundafimi.
Archives
October 2023
|