10 hundar skráðu sig ásamt eigendum á fyrsta bronspróf sem að hefur verið haldið á íslandi í hundafimi. Aðstæður voru misgóðar þar sem að völlurinn var heldur blautur en hundar og menn létu það ekki á sig fá og hlupu brautina af miklum glæsibrag.
Þeir sem náðu bronsmerki Íþróttadeildar Litlir: VTB - 100 sek. HTB - 200 sek. Stefanía Björgvinsdóttir og Snædís - 0 brautarvillur Meðalstórir: VTB - 90 sek. HTB - 180 sek. Brynhildur Bjarnadóttir og Embla - 10 brautarvillur Magnea Harðardóttir og Sómi - 5 brautarvillur Unnur Sveinsdóttir og Vaka - 10 brautarvillur Anna Björnsdóttir og Sunna Sól - clean run Stórir: VTB - 80 sek. HTB - 160 sek. Stefanía Björgvinsdóttir og Nala – 20 brautarvillur Stefanía Björgvinsdóttir og Díma - clean run Dóra Ásgeirsdóttir og Orka - 40 brautarvillur Óskum við þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn og hlakka til að sjá ykkur hlaupa í framtíðinni í opna tímanum og á mótum. Keppnisverðlaun og verðlaun fyrir að ná bronsprófi voru styrkt af Sláturfélagi Suðurlands, og þökkum við þeim kærlega fyrir. Dómari var Moníka Karlsdóttir Þökkum við henni og öllum þeim sem að komu að þessum degi, keppendur og starfsfólk kærlega fyrir frábærann dag.
0 Comments
Næsta laugardag 21 júni 2014 verður haldið bronsmerkjapróf í hundafimi á hundasýningu HRFI í Víðidalnum. Bronsmerkjakeppninn byrjar um kl 15.
Hægt er að skrá sig á staðnum og greiða fyrir það. Hvert bronsmerkjapróf kostar 1000 kr Hægt er að lesa sig til um bronsmerkjaprófið á hundafimi.is Í bronsmerkjaprófi þá þarf hundur að vera ólarlaus og stjórnandi ekki með neitt nammi eða annað í vösunum á meðan keppni stendur. Skrá þarf hundinn fyrir keppina og greiða áður en keppni hefst. (koma með pening er ekki með posa) Ef hundur stenst bronsmerkjaprófið þá hefur hann unnið sér rétt að mæta í opnu timana og æfa hundafimi eins og aðrir sem að hafa farið í bronsmerkjaprófið eða farið á námskeiðið. Einnig verður hægt að koma og prófa tækin undir kennslu þjálfara eða reynda keppenda á undan keppni eða eftir keppnina. Til að koma og prófa tækin er best að vera með venjulegan taum, ekki flesitaum eða keðjur. Gott er að hafa gott hundanammi við höndina, lyfrarpylsa er alltaf vinsæl. Hlakka til að sjá ykkur öll Árshátíð Íþróttadeildar var haldin föstudagskvöldið 30 mai á veitingastaðnum Horninu niður í miðbæ Reykjavíkur.
Fámennt en góðmennt var á árshátíðinni þar sem að 10 manns komu saman til að skemmta sér og sjá hvort annað í öðrum galla en hundagallanum. Á árshátíðinni var hin venjubundin atriði eins og afhending Skuggans, sem er farandverðlaunabikar um mestu framför ársins sem var að líða. Í ár fékk Steinunn Huld Atladóttir og Kolur Skuggann afhendann fyrir mestu framför árið 2013. Einnig fengu þau medalíu til eignar. Einnig er alltaf veitt mætingaverðlaun fyrir hvert ár. Í ár fengu Berglind Reynisdóttir og Grímur mætingaverðlaun og fengu aðfendan verðlaunapening fyrir afrekið. Með langbestu mætinguna 2013 sem og síðustu ár. Til gaman má geta að þau eru einnig lengst komin í keppinni og eru komin í flokk III í bæði Agility og jumpers keppnum. Á árshátíðinni er einnig alltaf hafð tombóla . Vinningar á hverjum miða og fengum við frábæra vinninga þetta árið. Þau fyrirtæki sem að gáfu á árshátíðina voru Lífland, Lýsi hf, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Pet head, Júlíus K-9, Artic trading company. Þökkum þeim kærlega fyrir frábæra vinninga. Þakka fyrir mjög skemmtilegt kvöld þeim sem að mættu og skemmtu sér saman þetta árið.. Hundafimi mót var haldið 31 mai í reiðhöll Andvara á Kjóavöllum. Keppendur voru 12 talsins hlaupu 9 hundar tvær brautir. Árangur var misjafn eins og gengur og gerist en allir virtist skemmta sér vel bæði hundar og menn og þá er tilganginum náð. Gaman að segja frá því að 4 nýjir keppendur tóku þátt í keppninni í fyrsta skiftið og hlökkum við að sjá þau aftur í næstu keppni. Styrktaraðilar á keppninni, voru Lífland, Lýsi og Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Þökkum við þeim kærlega fyrir styrkina og verðlaunin í keppnina. Vill ég þakka öllum styrkaraðilum , dómara keppninar Monika Karlsdóttir , riturum, öðrum starfsmönnum sem og keppendum kærlega fyrir skemmtilega keppni. |
Íþróttadeild HRFÍÍþróttadeildin heldur úti námskeiðum og æfingum og keppnum í hundafimi.
Archives
October 2023
|