Vegna óviðráðlegra aðstæðna þá verðum við að fresta hundaimikeppninni sem að átti að vera laugardaginn 26 sept til sunnudaginsins 11 okt kl 13-16. Skráningarfrestur verður til 5 okt. Vonandi kemur þetta ekki að sök. Stjórn Íþróttadeidlar
0 Comments
Skráning er á netfangið [email protected]
Koma þarf fram í skráningunni: Nafn keppenda og hunds Númer keppnisbókar Hvaða braut keppandi ætlar keppa. Ein braut kostar 2000 kr Tvær brautir kosta 3000 kr Bronsprófið kostar 2000 kr hvert skifti. Dómari Monika Hjálmstýrsdóttir Skráningarfrestur er til 22 sept. Greiða þarf fyrir keppnina á skrifstofu HRFI eða gegnum heimabankann 515-26-707729 Kt. 680481-0249 Barna og unglinga námskeið í hundafimi verður haldið í byrjun sept ef næg skráning verður á það. Námskeiðið er 12 klst langt , kennt er 1 klst í senn á sunnudagskvöldum í reiðhöll Andvara á kjóavöllum. Námskeiðið byrjar þegar næg skráning er komin á það. Hundafimin er fyrir alla hunda hvort sem að þeir eru ættbókarfærðir eða blendingar. Hundur verður að vera orðin 1 árs gamall. Stjórnandi á aldrinum 9-15 ára. Námskeiðið kostar 26000 kr og þarf að greiða fyrir það áður en námskeið hefst. Skráning og frekari upplýsingar eru veittar í [email protected]. .
Smáhundanámskeið/grunn námskeið í hundafimi verður haldið í byrjun sept ef næg skráning verður á það. Námskeiðið er 8 klst langt , kennt er 1 klst í senn á sunnudagskvöldum í reiðhöll Andvara á kjóavöllum. Námskeiðið byrjar þegar næg skráning er komin á það. Hundafimin er fyrir alla hunda hvort sem að þeir eru ættbókarfærðir eða blendingar. Hundur verður að vera orðin 1 árs gamall. Námskeiðið kostar 26000 kr og þarf að greiða fyrir það áður en námskeið hefst. Skráning og frekari upplýsingar eru veittar í [email protected]. Einnig bíð ég upp á að hópa námskeið ef fólk hefur áhuga á því að safna saman í hóp.
Kynningar tíminn er góður kostur fyrir hunda og hundaeigndur að koma og prófa hundafimitækin. Skemmtileg íþrótt þar sem að hundar og menn vinna saman í að komast í gegnum braut með allsskonar þrautum. Koma þarf með venjulegan taum , ekki flexi eða keðjur.
Gott nammi , góða skó og góða skapið. Laugardaginn 25 júli kl 13 verður haldið hundafimikeppni í Víðidal. Keppninn verður haldin á sama stað og sumarsýning HRFI.
Boðið verður upp á agility og hoppkeppni. Ein braut kostar 2000, tvær brautir 2500 kr. Skráning er í [email protected]. Koma þarf fram hvaða braut þið æltið að keppa í. Nafn keppenda og hunds og númer keppnisbókar. Skráning er til laugardagsins 18 júli. Hlökkum til að sjá ykkur Stjórn Íþróttadeildar. Árshátíð Íþróttadeildar var haldið í gær 9 maí 2015 á veitingastaðnum Potturinn og pannan.. Frábær matur og frábær og skemmtilegur félagsskapur.. Skugginn var afhendur (fyrir mestu framför ársins)farandbikar afhendur til geymslu í eitt ár. Anna Sigriður Einarsdóttir og Skutla fengu hann þetta árið fyrir mestu framför árið 2014. Einnig fengu þær verðlauna pening til eignar og vegleg verðlaun.. Medalíuna fyrir bestu mætinguna fékk Stefanía Björgvinsdóttir og hundarinir hennar ásamt veglegum verðlaunum. Haldin var tombóla eins og alltaf og voru veglegir vinningar , þeir sem að styrktu okkur í tombólunni og aðra vininga voru eftirfarandi fyrirtæki og þökkum við þeim kærlega fyrir. Kátir hvuttar, Dýrabær, Sláturfélag Suðurlands, Hundahreysti, Julíus-K9, peadhead.is, pepco.is, Garðheimar, Dýrheimar, Premíum og Egf. Takk kærlega fyrir mætingu þeir sem að mættu og skemmtu sér saman í gær og stýrktaraðilar fyrir styrkina...
Keppnis niðurstöður 18.apríl 2015
Einn náði bronsmerki deilarinnar í dag. Stórir: VTB - 80 sek. HTB - 160 sek. María Hrönn Magnúsdóttir og Dimma – 10 brautarvillur HO1/JU1 Litlir: VTB - 70 sek. HTB - 140 sek. Ingvar Linnet og Skuld 91,83 – 10,00 villur – heildarvillustig 31,83 - 0 eink. 1 sæti HO1/JU1 Meðal VTB - 65 sek. HTB - 130 sek. Ingvar Linnet og Tuva 85,42 – 20,00 villur – heildarvillustig 40,42 - 0 eink. 1 sæti Steinunn Atladóttir og Kolur DQ HO1/JU1 Stórir VTB - 60 sek. HTB - 120 sek. Agnes Björk Helgadóttir og Kría 60,60 – 20,00 villur – heildarvillustig 20,60 - 3.eink. 1 sæti HO3/JU3 Meðal VTB - 50 sek. HTB - 100 sek. Berglind Reynisdóttir og Sunna Sól 69,55 – 20,00 villur – heildarvillustig 39,55 – 0.eink. 1 sæti HF1/AG1 Litlir VTB - 60 sek. HTB - 120 sek. Ingvar Linnet og Skuld 105,21 – 5,00 villur – heildarvillustig 50,21 - 0 eink. 1 sæti HF1/AG1 Meðal VTB - 55 sek. HTB - 110 sek. Ingvar Linnet og Tuva DQ HF1/AG1 Stórir VTB - 50 sek. HTB - 100 sek. Agnes Björk Helgadóttir og Kría DQ Anna Sigríður Einarsdóttir og Skutla DQ HF2/AG2 Meðal VTB - 50 sek. HTB - 100 sek. Steinunn Atladóttir og Kolur DQ HF2/AG2 Meðal Öldungur VTB - 60 sek. HTB - 120 sek. Berglind Reynisdóttir og Sunna Sól 61,66 – 5,00 villur – heildarvillustig 6,66 – 2.eink. 1 sæti Skráning á hundafimimót sem að verður laugardaginn 18 apríl kl 13-16 í reiðhöll Andvara Kjóavöllum er hafinn. Dómari er Ragnar Sigurjónsson . Skráningarfrestur rennur út 13 apríl. Ein braut kostar 2000 kr, tvær brautir kosta 3000 kr. Bronspróf í hundafimi kostar 2000 kr. Skráning er í [email protected] Koma þarf fram nafn hunds, keppenda, númer bókar og í hvaða brautum þið ætlið að keppa. Greiðsla þarf að fara fram á skrifstofu HRFI til þess að skráning sé tekin gild. Vinsamlegast sendið kvittun á [email protected]. Einnig vantar alltaf starfsfólk á keppnirnar.. Endilega bjóðið ykkur fram án starfsfólks er ekki hægt að halda keppnir.
|
Íþróttadeild HRFÍÍþróttadeildin heldur úti námskeiðum og æfingum og keppnum í hundafimi.
Archives
October 2023
|